Dívan í Haag
22. febrúar 2010 klukkan 18:55
Það er svo langt síðan ég hef bloggað að ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja en stærstu fréttirnar eru þær að við erum flutt til Haag! Hér lærði Ásgeir og hér býr móðir hans svo að við höfum komið hingað áður ;) -og vorum hér um jólin.
Ég hef verið að sækja um hér og þar... svo er bara að bíða og sjá. Annars hef ég verið voða bissý við að koma okkur fyrir og átta mig á þessu, við höfum aðeins verið í rúma viku.
Jæja... meira var það nú ekki í bili. Verð að reyna að skrifa aðeins oftar...

Blogg fyrir pabba
28. nóvember 2009 klukkan 15:34
Ég hef verið svakalega upptekin síðustu vikur við að vinna í búningadeild RNCM. Við erum að sauma búninga fyrir La Belle Héléne eftir Offenbach, svo verð ég líka klæðari á sýningunum. Í dag er ég að vísu að sviðsstýra í tónleikahöllinni og líður eins og ég sé í fríi! Nú um helgina er gamelan hátíð, en gamelan er ásláttarhljóðfæri í mörgum hlutum frá asíu (flest verkin hljóma eins og hugleiðslutónlist). Í dag hafa verið þrjár æfingar og tónleikar en nú er síðasti hópurinn að æfa og þau verða með tónleika í kvöld. Það er búið að vera svakalega gaman að sauma þar sem ég hef fengið að bera ábyrgð á miklu meiru en áður í búningadeidinni. Ég er aðallega í því sem þarf að gera í höndunum, ganga frá og merkja föt en hef einnig verið að smíða leðurbelti (að vísu úr gerfileðri) og blómakransa á höfuð dísanna og fleira í þeim dúr. Fingurnir eru ansi sárir svo það er gott að fá frí frá saumaskapnum í einn dag áður en sýningar hefjast.
Ég vona að það séu ekki of margar stafsetninga- og málvillur í þessum pósti, en grunar að það gæti verið þar sem ég er að leka niður úr þreytu. Pabbi sér kannski um að leiðrétta ;)
Jólakortagerðin er hálfnuð en annað hef ég ekki afrekað í jólaundirbúningnum. Ég hef ekki einu sinni haft tíma til að kíkja á jólamarkaðinn en hlakka mikið til. Jólamarkaðurinn hér er stórkostlegur. Þar er hægt að fá allt milli himins og jarðar, jólagjafir og mat mmmm..... osta frá Frakklandi, hollenskar pönnukökur, svissneskan bræddann ost á kartöflur og svo svífur ilmurinn af jólaglöggi yfir allt. Dásamlegt!
Ég heyrði í mömmu, pabba, Signýju og strákunum hennar áðan. Þau voru ekki aðeins búin að renna sér á sleðum í dag heldur búin að "extra" baðherbergið og hnoða í piparkökur sem átti að fara að skera úr. Það vantar ekki framkvæmdasemina á þeim bænum.
Jæja, ég hef þetta ekki lengra að sinni.
Góðar stundir.

Að blogga eða ekki blogga...
20. október 2009 klukkan 15:55
Ég er farin að hugsa um að búa til jólakortin...
Það hlýtur því að fara að koma tími til að skrifa hér fljótlega ;)

Haust
16. september 2009 klukkan 13:00
Ég virðist vera farin að skrifa einn póst fyrir hverja árstíð!
Sumarið hefur verið gott, það var svakalega gaman í Kýpur og Egyptalandi, myndirnar eru á fésbókinni :)
Embla var svo í smá tíma hjá okkur líka í Manchester og er að koma aftur bráðum og þá með vinkonu sinni Rebekku, það verður aldeilis stuðvika.
Við erum flutt til Levenshulme, en það er aðeins fjær miðbænum en millan fína. Hún er hinsvegar rýmri og krúttilegri en millan. Nú erum við með gestaherbergi, fyrstur kemur, fyrstur fær, svo nú er um að gera að leggja fram pöntun.
Við erum líka með svalir :) Levenshulme er vel tengt samgöngum og það tekur víst bara nokkrar mínútur að fara til Stockport, en það er gamall markaðsbær, svo nú bíð ég eftir því að eiga frí á föstudegi til að geta séð þennan fræga markað.
Ég var að koma heim í gærkvöldi frá Íslandi, en ég fór heim í nokkra daga til að vera við jarðaför ömmu minnar. Þó það hafi ekki verið nein skemmtiferð þá var gott að hitta fjölskylduna. Við Signý velltum fyrir okkur hvort við frændsystkynin ættum eftir að ná að hittast aftur öllsömul, en meira en helmingur okkar býr erlendis.
Það er skrítin tilfinning að vera ekki að fara í skólann í næstu viku, en þá hefst hann. Nú er ég bara í því að finna mér eitthvað að gera. En ég verð áfram sviðsstjóri í skólanum, mér líkar það vel.
Jæja, þetta var haustpistillinn, þið getið svo kíkt inn á aðventunni, þá skrifa ég sennilega eitthvað um mömmukökubakstur og jólakortagerð.

Sumarfrí
03. júlí 2009 klukkan 10:39
Embla og Einar koma í kvöld :) og svo förum við til Kýpur á sunnudaginn og verðum í tvær vikur!
Of mikið að gera!
02. júlí 2009 klukkan 00:34
Embla kemur á föstudaginn og svo förum við í sumarfrí til Kýpur á sunnudaginn. Okkur Ásgeiri hlakkar alveg svakalega til að sjá litlu skvísuna.
En það er bara of mikið að gera, ég veit ekki alveg hvernig ég á að komast yfir það allt saman...

Ný færsla
30. júní 2009 klukkan 23:57
Ég hef ekki nennt að byrja á nýrri færslu því það er frá of mörgu að segja. Kannski ég byrji samt bara á deginum í dag, hann var frábær og furðulegur.
Ég var að ganga í skólann um níuleytið í morgun þegar það var hringt í mig og ég beðin um að syngja í messu. Ég sagði auðvitað já þar sem þetta var borgað...
Ég var í morgun að vinna að stórskemmtilegu verkefni fyrir litla krakka frá fátækum skólum á stór-Manchester svæðinu.
Við vorum þrjú sem sungum eða spiluðum fyrir þau eins og við værum í áheyrnarprófi og svo tóku þau viðtal við okkur. Í viðtalinu áttum við að leika einhvern feiminn, hrokafullann eða hinn fullkomna nemanda. Þau áttu svo að velja eitt okkar til að mæla með við skólastjórann að við fengjum pláss við RNCM. Þeim var ekki sagt að þetta væri ekki raunverulegt og tóku þessu mjög alvarlega.
Svo hljóp ég heim, smurði samloku með rúllur í hárinu, fór í svarta kjólinn og dreif mig svo aftur í skólann þar sem við vorum sótt af stjórnandanum.
Svo kom í ljós að kórinn samanstóð aðeins af 9 söngvurum, við vorum að syngja kaþólska hátíðarmessu með heilt verk eftir Palestrina, annað sem ég man ekki hvað var og 5 sálma -og með um 40 mínútur til að æfa.
Ég söng af blaði eins og ég ætti lífið að leysa á æfingunni og þakkaði guði fyrir alla leiðinda tónheyrnartímana sem ég þurfti að sækja í um áratug. Messan gekk mjög vel! og nokkrir prestar (það voru um 40 prestar þar því þetta var stórhátíð) báðu stjórnandann um að fá okkur í fleiri gigg :D

Rusl?
07. júní 2009 klukkan 21:36
Ásgeir fór niður með ruslið og fann sjónvarp! Við höfum reyndar fundið sjónvarp í ruslaherberginu áður, en það var sífellt að slökkva á sér, svo það fór aftur niður... En þetta virðist virka flott :) Það er að vísu hræðilega stórt, bolluskjár, en myndin er skýr og góð, jeij!
Nú er vikan mikla að renna upp... Smá stress í gangi ennþá, vona að allt smelli saman í hausnum á mér á morgun.

Brindisi
03. júní 2009 klukkan 19:16
Við æfðum í dag fyrir óperugalað og mér líst vel á þetta. Við syngjum m.a. Brindisi sem mamma og pabbi þekkja vel :)
Æfingin á senunni gekk ágætlega, held ég sé farin að skilja Iliu aðeins betur. Fékk líka óvænt coaching þar sem einhver datt út sem var frábært! Munar öllu að fá smá prívattíma með coach. Annars hefur kólnað aðeins þó veðrið sé enn fallegt og sólríkt en rigningu er spáð seinnipart vikunnar. Á morgun er fyrsti söngtíminn eftir próf og ég er dáldið spennt að heyra hvað Peter hefur að segja um tónleikana.

Hiti eða hávaði?
02. júní 2009 klukkan 18:30
Hvort er verra að vera í loftlausri og heitri íbúð eða hávaðasamri er það sem við Ásgeir þrætum um þessa dagana. Ég kýs hávaðann en hann hitann.... ooo ég verð að fara að kaupa viftu!
Annars er allt við það sama, söng ALLT OF MIKIÐ í dag... er að reyna að hamra þessarri óperusenu inn.
Svo er æfing á morgun fyrir óperugalað, allt að ske :)